Jón Arnór Stefánsson virðist vera í feiknar formi þessa dagana. Kappinn er að spila vel fyrir lið sitt CAI Zaragoza á Spáni og liðið að standa sig gríðarlega vel. Á heimasíðu ACB.com sem er einskonar “karfan.is” þarlendis var Jón tekinn í viðtal þar sem hann tjáði blaðamanni að hann væri í feiknar formi.
“Ég á við smávægleg meiðsli núna en ekkert sem er stórt mál. Sem stendur er ég í einu besta formi sem ég hef verið á ferlinum. Liðið er að spila vel saman og það er kraftur í þessu hjá okkur og þannig vil ég hafa þetta. Svo eru stuðningsmenn okkar líka gríðarlega stór partur af þessu.” sagði Jón Arnór og talaði einnig um markmið liðsins.
“Konungsbikarinn er okkar markmið. Við þurfum tvo sigra þar í viðbót þannig að við erum nálægt því. Við þurfum að halda áfram á sömu braut og njóta augnabliksins.” sagði Jón Arnór.