10:00
{mosimage}
Jon Robert Holden hefur leikið vel fyrir Rússa
Þrír leikir fara fram á Evrópumótinu á Spáni í dag en fer að styttast í átta liða úrslitin og því geta línurnar skýrst í E riðli í dag.
Portúgal og Ísrael eigast við klukkan 14:30 og eru Portúgalir án sigurs í riðlinum en Ísraelar unnu Króata á dögunum.
Klukkan 17:00 eigast við tveir fornir fjendur, Grikkir og Króatar. Sigur er mikilvægur báðum liðum til að komast í átta liða úrslitin en gengi þeirra hefur verið upp og ofan í mótinu.
Að lokum eigast við Rússar og Spánverjar klukkan 19:30 og má reikna með hörkuleik tveggja mjög góðra liða þar en Rússar hafa ekki tapað leik í mótinu.
Mynd: www.eurobasket2007.org