Elvar Már Friðriksson og Maroussi máttu þola tveggja stiga tap gegn Lavrio í dag í grísku úrvalsdeildinni, 94-92.
Á tæpum 38 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 20 stigum, frákasti, 17 stoðsendingum og stolnum bolta, en hann var framlagshæstir leikmaður Maroussi í leiknum. Þá setti hann met í deildinni frá upphafi með 17 stoðsendingum.
Eftir leikinn er Maroussi í 11. sæti deildarinnar með 23 stig.