Elvar Már Friðriksson og Siauliai lögðu í dag Nevezis í úrvalsdeildinni í Litháen, 85-73. Eftir leikinn eru Siauliai í 6. sæti deildarinnar með 12 sigra og 20 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 12 stigum, 2 fráköstum, 8 stoðsendingum og 4 stolnum boltum. Næsti leikur Siauliai er þann 2. maí gegn Rytas.