spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már og Rytas lutu í lægra haldi gegn Juventus

Elvar Már og Rytas lutu í lægra haldi gegn Juventus

Elvar Már Friðriksson og Rytas máttu þola tap í dag fyrir Juventus í LKL deildinni í Litháen, 77-88.

Á rúmum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 8 stigum, frákasti og 4 stoðsendingum.

Þrátt fyrir tapið er Rytas í nokkuð góðri stöðu í deildinni, sitja í öðru sætinu með 15 sigra og 5 töp það sem af er tímabili.

Næsti leikur Rytas er þann 12. mars gegn toppliði Zalgiris.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -