spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már og félagar lögðu Bahcesehir í Meistaradeildinni

Elvar Már og félagar lögðu Bahcesehir í Meistaradeildinni

Elvar Már Friðriksson og Rytas lögðu Bahcesehir í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 95-88.

Rytas eru eftir leikinn í efsta sæti J riðils keppninnar með einn sigur og eitt tap eftir fyrstu tvo leiki 16 liða umferðar keppninnar.

Elvar Már lék rúmar 16 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 5 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum.

Næsti leikur Rytas í keppninni er þann 8. febrúar gegn Bonn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -