Elvar Már Friðriksson og Antwerp Giants máttu þola tap í kvöld fyrir Heroes Den Bosch í Elite Gold deildinni í Belgíu/Hollandi, 95-81.
Eftir leikinn er Antwerp í 5.-7. sæti deildarinnar með 18 stig.
Á tæpum 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 18 stigum, 4 fráköstum, 6 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Elvars og Antwerp er þann 27. mars gegn Groningen.