Elvar Már Friðsiksson og PAOK lögðu Apollon í grísku úrvalsdeildinni í dag, 85-70.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum skilaði Elvar Már 12 stigum, 3 fráköstum, 12 stoðsendingum og 4 stolnum boltum.
Eftir leikinn er PAOK í 8. sæti deildarinnar með 23 stig, 9 stigum fyrir neðan Panathinaikos sem eru í efsta sætinu.