Elvar Már Friðriksson og PAOK töpuðu fyrir Lavrio í grísku úrvalsdeildinni í dag, 89-85.
Á tæpum 35 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 11 stigum, 4 fráköstum, 9 stoðsendingum og 3 stolnum boltum, en hann var framlagshæstur í liði PAOK í leiknum. Þá var leikurinn sá fyrsti sem Elvar leikur við hlið fyrrum NBA leikmannsins Kevin Porter Jr, en hann átti einnig ágætis leik í frumrauninni, skilaði 14 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Eftir leikinn er Paok í 9. sæti deildarinnar með 33 stig.