Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson og Siauliai máttu þola tap í dag fyrir stórliði Zalgiris í úrvalsdeildinni í Litháen, 86-105. Siauliai eru eftir leikinn í 7. sæti deildarinnar með 11 sigra og 20 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 25 mínútum spiluðum skilaði Elvar Már 9 stigum, 2 fráköstum og 7 stoðsendingum. Næsti leikur Siauliai er þann 28. apríl gegn botnliði Nevezis.