Elvar Már Friðriksson og Siauliai lögðu í dag Pieno Zvaigzdes í úrvalsdeildinni í Litháen, 70-88. Eftir leikinn er liðið í 10. sæti deildarinnar með 6 sigra og 16 töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 34 mínútum spiluðum skilaði Elvar Már 7 stigum, frákasti 11 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Næsti leikur Siauliai er þann 9. mars gegn Zalgiris.