Elvar Már Friðriksson var í eldlíinunni nú áðan þegar Barry University tryggði sig áfram í 32 liða úrslit í DII úrslitakeppninni í háskólaboltanum. Barry spilaði gegn Rollins skólanum í Alabama og sigruðu 107: 92 eftir að hafa leitt með 13 stigum í hálfleik. Elvar Már Friðriksson var í forystu hlutverki að venju hjá liðinu og skoraði 13 stig og sendi 6 stoðsendingar ásamt því að hrifsa 2 fráköst.
Barry halda því áfram í 32 liða úrslit og mæta þar að öllum líkindum liði Eckerd, sama liði og sigruðu þá í úrslitum SSC deildarinnar þannig að Barry á harma að hefna þar.