spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaEllefu sigurleikir í röð

Ellefu sigurleikir í röð

Jón Axel Guðmundsson og San Pablo Burgos ríghalda í efsta sæti Primera Feb deildarinnar á Spáni, en í dag lögðu þeir Morón með 30 stigum, 101-71.

Á tæpum 17 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón fimm stigum, þremur fráköstum, stoðsendingu og þremur stolnum boltum.

Leikurinn var sá ellefti sem Jón Axel og félagar vinna í röð, en þeir eru sem áður í efsta sæti deildarinnar með átján sigra og aðeins eitt tap það sem af er keppni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -