spot_img
HomeFréttirEiríkur Ólafsson tók nóvember Olseninn

Eiríkur Ólafsson tók nóvember Olseninn

 Það var Eíríkur Ólafsson sem giskaði næstum því á rétt úrslit í Olsen Olsen leiknum okkar hér á Karfan.is.  Nóvember leikurinn var viðureign KR og Grindavíkur sem mættust í 8. umferð Dominosdeild karla.  Leikurinn fór 80:87 Grindavík í vil og var Eiríkur ansi nálægt réttum úrslitum því hann tippaði á 82:88.  Það dugði honum til sigurs að þessu sinni. 
 
Eiríkur býr í Borgarnesi og styður sitt lið þar Skallagrím. Ekki nóg með það að styðja liði sitt úr stúkunni heldur einn úr fjölskyldunni í átökunum á vellinum en það er Trausti Eiríksson.  Eiríkur mun því í næstu heimsókn sinni í Reykjanesbæinn gæða sér á gómsætri máltíð frá Olsen Olsen. 
 
Næsti leikur sem fólk getur tippað á er svo sem ekkert af verri endanum.  El Classico í Reykjanesbæ þegar að Keflavík og Njarðvík mætast þann 13. des næstkomandi.  Hægt verður að senda inn úrslit fram til kl 17:00 á leikdag. 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -