Einn leikur er á dagskrá í kvöld í fyrstu deild karla.
Topplið Hauka tekur á móti Skallagrím í Ólafssal kl. 19:30.
Fyrir leikinn eru Haukar í efsta sæti deildarinnar með 20 stig á meðan að Skallagrímur er í 7. sætinu með 10 stig.
Liðin hafa í eitt skipti áður mæst í vetur, en það var þann 15. október í Borgarnesi þar sem að Haukar höfðu öruggan sigur, 81-113.

Leikur dagsins
Fyrsta deild karla
Haukar Skallagrímur – kl. 19:30