Einn leikur fer fram í fyrstu deild karla í kvöld.
Álftnesingar taka á móti Hamar kl. 19:15 í Forsetahöllinni.
Segja má að um sé að ræða toppslag í deildinni, þar sem að Álftnesingar eru í efsta sætinu með níu sigra og eitt tap eftir fyrstu tíu leikina á meðan að Hamar er í þriðja sætinu með sex sigra og tvö töp eftir átta leiki.
Leikur dagsins
Fyrsta deild karla
Álftanes Hamar – kl. 19:15