Landslið U18 karla er nú í Austurríki að spila á Evrópumóti B-deildar. Karfan.is hitti á Einar Árna Jóhannsson og ræddi um sumarið hjá U18 liðinu og öllum landsliðum okkar í yngri flokkunum. Einar Árni segir verkefnin sem liðin er að takast á við núna aldrei hafa verið stærri.