8:00
{mosimage} {mosimage}
Daði Berg Grétarsson Egill Egilsson
Daði Berg Grétarsson, fyrrum leikmaður Fjölnis, og Egill Egilsson, fyrrum leikmaður Snæfells hafa gengið til liðs við FSu. Þeir voru báðir hluti af sigursælu U-16 liði drengja sem varð Norðurlandameistari í maí síðastliðnum.
Samhliða körfuboltanum munu þeir stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu). Þeir hafa nú þegar hafið æfingar með liðinu.
Myndir: Snorri Örn Arnaldsson