Undir 20 ára karlalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumóti í Matosinhos í Portúgal. Í dag sigraði liðið lokaleik sinn gegn Georgíu með 4 stigum, 94-90. Endaði liðið því í 7.sæti Evrópumóts þessa árs.
Fréttaritari Körfunnar í Portúgal ræddi við leikmann íslenska liðsins, Egil Agnar Októsson, eftir leik í Matosinhos.