Bryndís Guðmundsdóttir var í enn eitt skiptið að hlaða inn gulli í safnið en í fyrsta skipti með öðru liði en Keflavík. Bryndís skipti á miðju tímabili úr Keflavík til Snæfell eftir smá kurr í herbúðum Keflvíkinga. Bryndís sá ekki eftir neinu í kvöld og sagði muninn á þessum titli og hinum að líkast til hafi aldrei verið jafn margir á leik. En 1680 manns mættu á Ásvelli í kvöld að sjá leikinn. Á myndinni má sjá Bryndísi í innilegu knúsi með þjálfaranum Inga Þór Steinþórssyni