Þór lagði Hauka með einu stigi 82 -81 og náðu í sinn fjórða sigur í fimm leikjum. Þeir eru því komnir í fjórða sæti Bónusdeildarinnar. Haukar töpuðu sínum fimmta leik og sitja sem fastast á botninum
Karfan spjallaði við Máté Dalmay þjálfara Hauka eftir leik í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn.