spot_img
HomeFréttirDregur til tíðinda í Lengjubikarnum í kvöld

Dregur til tíðinda í Lengjubikarnum í kvöld

Í kvöld eru fjórir leikir í Lengjubikar karla og þá fáum við mynd að hluta af því hvernig undanúrslitin verða skipuð í Stykkishólmi. Fjórir leikir eru í Lengjubikarnum í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15.
 
Lengjubikar karla, kl. 19:15 í kvöld:
 
Stjarnan-Tindastóll (FRESTAÐ TIL MORGUNS)
Skallagrímur-Haukar
Grindavík-Keflavík
KFÍ-Snæfell
 
A-riðill
Keflavík og Grindavík leika hreinan úrslitaleik um að komast áfram í keppninni. Keflavík vann fyrri leikinn 99-91 en þar sem bæði lið hafa nú 8 stig skiptir innbyrðisviðureignin ekki máli, bara hver vinnur þennan lokaleik. Haukar og Skallagrímur sitja eftir.
 
B-riðill
Með sigri kemst Snæfell upp úr riðlinum en þeir mæta KFÍ í síðasta leik. Ef Snæfell tapar og KR vinnur Hamar í síðasta leik kemst KR áfram þar sem þeir hafa betur innbyrðis gegn Snæfell. KFÍ og Hamar sitja eftir.
 
C-riðill
Stjarnan og Tindastóll leika úrslitaleik um að komast upp úr riðlinum. Tindastóll hefur enn ekki tapað í Lengjubikarnum og eru með 10 stig. Stjarnan fylgir fast á hæla þeirra með 8 stig og þurfa að vinna síðasta leikinn í Garðabæ með 16 stiga mun eða meira til að komast upp úr riðlinum. Breiðablik og Fjölnir stitja eftir.
 
 
D-riðill
Þór Þorlákshöfn er með 8 stig í riðlinum og dugir sigur gegn Njarðvík í síðasta leik til að komast upp úr riðlinum. Ef Þór tapar með 9 stigum eða meira nær Njarðvík innbyrðisviðureigninni á milli liðanna og kemst upp fyrir Þór. ÍR hefur hinsvegar betur innbyrðis gegn Njarðvík og mætir Val í síðasta leik. Ef ÍR vinnur og Njarðvík vinnur Þór með 9 stigum eða meira kemst ÍR upp úr riðlinum. Öllu jöfnu til að ÍR komist upp þarf Þór að tapa svo það verður forvitnilegt að fylgjast með leikjunum í D-riðli en Valsmenn sitja þó eftir.
 
  
Mynd/ [email protected]: Justin Shouse og félagar þurf að galdra fram sterkan leik og vinna Tindastól með 16 stiga mun ef þeir ætla sér áfram í keppninni.
Fréttir
- Auglýsing -