spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Dregið í riðla fyrir undankeppni EuroBasket 2025

Dregið í riðla fyrir undankeppni EuroBasket 2025

Nú í fyrramálið verður dregið í riðla fyrir undankeppni EuroBasket 2025

Undankeppnin verður leikin í þremur gluggum, þar sem sá fyrsti er í febrúar 2024.

Fyrir dráttinn er Ísland í sjöunda styrkleikaflokki, en samkvæmt skipulagi mun liðið því lenda riðli með liðum úr öðrum, þriðja og sjötta styrkleikaflokki.

Líkt og sjá má á myndinni hér fyrir neðan eru því ansi margar samsetningar sem geta orðið í þessum riðil Íslands í undankeppninni, en ásamt Íslandi í sjöunda styrkleikaflokk eru Bret­land, Svíþjóð og Makedón­ía. 

Úr styrkleikaflokki tvö verður eitt af Litháen, Grikklandi, Ítalíu eða Þýskaland mótherji Íslands.

Úr styrkleikaflokki þrjú verður eitt af Tékklandi, Póllandi, Tyrklandi eða Svartfjallalandi mótherji Íslands.

Úr styrkleikaflokki sex verður eitt af Ungverjalandi, Eistlandi, Hollandi eða Búlgaríu mótherji Íslands.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -