spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaDraga liðið úr keppni

Draga liðið úr keppni

Snæfell hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í fyrstu deild kvenna. Tilkynnir félagið þetta með fréttatilkynningu nú í kvöld.

Tilkynningu félagsins er hægt að sjá hér fyrir neðan, en samkvæmt félaginu er það að vel ígrunduðu máli sem stjórn körfuknattleiksdeildar, aðalstjórn félagsins og aðstandendur leikmanna hafa ákveðið að draga liðið úr keppni.

Þá segir í tilkynningunni að nú hefjist tími skipulags og uppbyggingar innan yngri flokka félagsins svo hægt verði að mæta með lið af fullum krafti í framtíðinni.

Tilkynning:

Að vel ígrunduðu máli hafa stjórn kkd. Snæfells, Aðalstjórn félagsins og aðstandendur leikmanna ákveðið að draga liðið úr keppni í 1. deild kvenna frá og með deginum í dag, 11. desember. Stelpurnar munu því ekki leika síðasta leik sinn fyrir jólafrí sem átti að fara fram á laugardag.

Nú hefst tími skipulags og uppbyggingar innan yngri flokka félagsins svo kvennalið Snæfells geti mætt af fullum krafti til leiks í framtíðinni. Snæfell þakkar stelpunum fyrir sitt framlag á leiktíðinni.

Áfram Snæfell

Fréttir
- Auglýsing -