spot_img
HomeFréttirDomino´s liðið sigurvegari í Stjörnuleiknum

Domino´s liðið sigurvegari í Stjörnuleiknum

Stjörnuleikur KKÍ fór fram í Ásgarði í Garðabæ í dag. Mætingin var góð sem og stemmningin en það voru erlendu leikmennirnir í Domino´s liðinu sem höfðu sigur að lokum 122-148. Jay Threatt var valinn besti maður leiksins með myndarlega þrennu, 21 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar.
 
Eins og áður hefur komið fram er það Magnús Þór Gunnarsson sem getur næsta árið kallað sig þriggjastiga kóng Íslands og liðsfélagi hans úr Keflavík, Billy Baptist, hafði sigur í troðslukeppninni.
 
 
 
Hér að neðan má svo sjá þá félaga Martin Hermannsson og Kristófer Acox bregaða á leik í troðslukeppninni:
  
Fréttir
- Auglýsing -