spot_img
HomeFréttirDoddi litli spáir í bikarleikina

Doddi litli spáir í bikarleikina

Nú í dag og á morgun birtum við spá hinna ýmissa manna og kvenna fyrir bikarhelgina sem framundan er.  Þar munu etja kappi, Keflavík og Valur hjá konunum og svo Grindavík og Stjarnan hjá körlunum.  Þórður Helgi Þórðarson á Sportrásinni ríður á vaðið og segir okkur hans spá. 
Í kvenna leiknum spái ég 60:42 Keflavík í vil og ég spá því að Sara Hinriksdóttir verði maður þessa leiks. Annars verð ég að viðurkenna að ég veit ansi lítið um kvennaboltann.
 
Í karlaleiknum spái ég 101:97 sigri Grindvíkinga og að Sammy Zeglinski verði maður þessa leiks.  Ég geri ráð fyrir að Sverrir reyni að þreyta Shouse sem verður til þess að hann verður ekki samur við sig síðustu 5 mínútur leiksins.  Teitur mun leggja upp með að spila mikið inní teig á sína stærri menn en Siggi Þorsteins verður í bana stuði varnarlega en gerir minna sóknarmegin.  Hann gæti mögulega verið maður leiksins en skorar lítið og á því ekki séns hjá heimskum spekingum. 
 
Fréttir
- Auglýsing -