Hinn 20 ára gamli Devin Booker náði ótrúlegu afreki í gær þegar hann var með 71 stig í einum leik fyrir Pheonix Suns. Það dugði þó skammt þar sem liðið tapaði leiknum gegn Boston. Þetta tókst honum þrátt fyrir að skora aðeins fjórar þriggja stiga körfur í leiknum.
Þetta var ekki eingöngu hans mesti stigafjöldi í einum leik heldur einnig mesta sem leikmaður Phoenix hefur sett í leik. Hann er einnig sjöundi leikmaðurinn sem nær yfir 70 stig í leik í sögu NBA. Síðasti leikmaður sem náði því var Kobe Bryant árið 2006 sem setti 81 stig í leik gegn Toronto. Það er því ekki amalegur félagsskapur sem þessi spennandi leikmaður er kominn í.
Öll stig Bookers má sjá í þessu myndbandi:
Öll úrslit gærkvöldsins:
Washington Wizards 129-108 Brooklyn Nets
Orlando Magic 115-87 Detroit Pistons
Indiana Pacers 117-125 Denver Nuggets
Chicago Bulls 107-117 Philadelphia 76ers
Boston Celtics 130-120 Phoenix Suns
Milwaukee Bucks 100-97 Atlanta Hawks
Golden State Warriors 114-100 Sacramento Kings
Houston Rockets 117-107 New Orleans Pelicans
Charlotte Hornets 105-112 Cleveland Cavaliers
Los Angeles Lakers 130-119 Minnesota Timberwolves
Hér að neðan eru helstu tilþrif gærkvöldsins: