spot_img
HomeFréttirDeng vinnur prúðmennskuverðlaun

Deng vinnur prúðmennskuverðlaun

Sample Image

Luol Deng, leikmanni Chicago Bulls var í dag afhent viðurkenning NBA deildarinnar í ár fyrir heiðarleika og drenglyndi á velli. Verðlaunin eru nefnd eftir fyrsta handhafa þeirra – gömlu Pistons kempunni Joe Dumars.  Þau eru ár hvert veitt þeim leikmanni sem þykir sýna af sér mestan heiðarleika á velli.

Kosningin fer þannig fram að hvert lið deildarinnar tilnefnir einn leikmann úr sínu liði og það eru svo leikmenn deildarinnar sem kjósa.
Deng var sem fyrr segir efstur – fékk 2027 stig, en næstur kom Shane Battier með 2005 stig.

Deng sem þykir einhver efnilegasti “mid-range shooter” sem sést hefur í lengri tíma hefur átt frábært tímabil fyrir Chicago liðið og var einnig ofarlega í kjörinu um varnarmann ársins og í kosningunni um mestu framfarir.

Athygli vekur að þetta er þriðja árið í röð sem leikmaður úr Duke háskólanum í Norður-Karólínu fær þessi verðlaun en Elton Brand vann þau í fyrra og Grant Hill árið þar á undan – ljóst að margir mættu taka uppeldisstefnuna þar til fyrirmyndar.

John Paxson, framkvæmdarstjóri Chicago Bulls sagði í viðtali af þessu tilefni að Deng væri ýmind alls þess sem hann vildi sjá í fóki – bæði sem körfuboltamanni og einstakling. "Deng er ein ástæða þess hversu langt við höfum náð í ár. Ég er virkilega stoltur af honum. Mér þykir gríðarlega mikið til hans koma og hef mikið álit á honum." sagði Paxson að lokum.
 
[email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -