Keflavík lagði Stjörnuna í Blue höllinni í dag í A deild Subway deildar kvenna.
Keflavík hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og eru eftir leikinn í efsta sæti deildarinnar á meðan að Stjarnan er í 5. sætinu.
Stjarnan hóf leik dagsins með ágætum og leiddi eftir fyrsta leikhluta, 15-17. Enn bæta þær svo í og eru með nokkuð góða 9 stiga forystu þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 29-38.
Svar Keflavíkur kom svo í upphafi seinni hálfleiksins. Komast betur af stað sóknarlega og ná að vinna niður forskot nýliða Stjörnunnar hægt, en örugglega og eru sjálfar komnar í forystu fyrir lokaleikhlutann, 53-50. Í honum ganga þær svo enn á lagið og vinna leikinn að lokum gífurlega örugglega, 77-56.
Atkvæðamest í liði Keflavíkur í leiknum var Daniela Wallen með 19 stig, 11 fráköst og 8 stoðsendingar. Fyrir Stjörnuna var Denia Davis-Stewart atkvæðamest með 16 stig og 16 fráköst.