spot_img
HomeFréttirDarrell Flake snýr aftur í Borgarnes

Darrell Flake snýr aftur í Borgarnes

Darrell Flake hefur ákveðið að snúa aftur í Borgarnes á næsta tímabili og spila með Skallagrím í Dominos deildinni. Þetta var tilkynnt á Facebook síðu Skallagríms í kvöld.

 

Þessi 36 ára miðherji kemur frá Tindastól þar sem hann hefur leikið síðustu tvö tímabil við góðan orðstýr. Síðast spilaði Flake með Skallagrím árið 2012 og var þá með 19 stig og 13 fráköst að meðaltali í leik.

 

Darrel Flake kemur ný til liðs við Skallagrím í þriðja skipti en hann kom fyrst árið 2006, aftur 2010 og svo að lokum 2016.

 

Síðasta tímabil Flake hjá Tindastól einkenndist af meiðslum en hann skilaði þó 9,5 stigum og 4,5 fráköstum. Hann hefur spilað auk Skallagríms og Tindastóls með Þór Þ, Fjölnir og Grindavík og spilar því sem íslendingur í deildinni.

 

Í tilkynningu frá Skallagrím segir að liðið „vænti mikils af reynslu og leiðtogahæfni Flake í ungu og efnilegu liði Skallagríms.“

 

Frétt / Ólafur Þór Jónsson

Mynd / Bára Dröfn

 

Fréttir
- Auglýsing -