spot_img
HomeFréttirDarrel Flake vill halda áfram að spila á Íslandi

Darrel Flake vill halda áfram að spila á Íslandi

10:25

{mosimage}
(Flake í leiknum í gær)

Darrel Flake, leikmaður Skallagríms, segist vilja spila á Íslandi næsta vetur en tekur þó fram að framtíð hans sé óráðin. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Það er óvíst hvað tekur við hjá mér núna en ég hef áhuga á því að leika áfram á Íslandi og sækja um ríkisborgararétt.” sagði Flake og bætt við Íslenska deildin er sterk og sá leikstíll sem íslensk lið leggja áherslu á hentar mér mjög vel. En það er ekkert ákveðið um framtíð mína og ég þarf að ræða við fjölskylduna um framhaldið.”

Flake er að spila sitt þriðja tímabil á Íslandi en hann hefur áður leikið með KR og Fjölni.

Heimild: Morgunblaðið

Mynd: Svanur Steinarsson – [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -