Ísland laut í lægra haldi gegn Slóvakíu í Ólafssal í kvöld í þriðja leik sínum í undankeppni EuroBasket 2025. Íslenska liðið enn án sigurs í keppninni eftir fyrstu þrjá leikina á meðan að Slóvakía hefur unnið tvo og tapað einum.
Karfan spjallaði við Danielle Rodriguez leikmann Íslands eftir leik í Ólafssal. Danielle gerði ansi vel í þessum fyrsta leik sínum fyrir Ísland, skilaði 29 stigum og 5 fráköstum á rúmum 35 mínútum spiluðum.