Dominos deild kvenna rúllar af stað á miðvikudagskvöldið með heilli umferð. Í dag hélt KKÍ blaðamannafund þar sem tilkynnt var um spár aðstandenda liða deildarinnar, sem og fjölmiðlamanna.
Samkvæmt forráðamönnum og leikmönnum liðanna mun KR hafna í öðru sætinu, en það sama var uppi á teningnum í spá fjölmiðlamanna.
Karfan ræddi við bakvörð liðsins, Danielle Rodriguez, um komandi tímabil.