Keflavík lagði nýliða Grindavíkur í kvöld í fjórðu umferð Dominos deildar kvenna, 105-85.
Eftir leikinn er Keflavík í 2.-3. sæti deildarinnar með 6 stig líkt og Njaðvík á meðan að Grindavík er í 5.-7. sætinu ásamt Breiðablik og Fjölni með 2 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar.
Karfan spjallaði við Daniela Wallen Morillo leikmann Keflavíkur eftir leik í Blue Höllinni. Daniela átti nokkuð góðan leik fyrir Keflavík, skilaði 15 stigum, 12 fráköstum, 9 stoðsendingum og 7 stolnum boltum.