Fram kemur á vefsíðu KFÍ að félagið hafi samið við bakvörðinn Daníel Þór Midgley.
Daníel er uppalinn í KFÍ og á að baki 42 leiki með félaginu í 1. deild og úrvalsdeild. Hann varð 1. deildar meistari með KFÍ vorið 2010 eftir að liðið vann 16 af 18 leikjum sínum í deildinni. Hann lék með Bolvíkingum í 2. deild á árunum 2010-2012.
Daníel Þór er leiftursnöggur eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.
Frétt KFÍ.is