Nýr leikmaður, Daníel Freyr Friðriksson, er genginn til liðs við KFÍ í gegnum venslasamning við ÍR. Daníel Freyr er ungur og efnilegur bakvörður sem hefur leikið með ÍR undanfarin ár en er uppalinn í Fjölni. www.kfi.is greinir frá.
Daníel kemur vestur í dag en stoppar stutt við því KFÍ liðið brunar norður á Akureyri til að mæta Þórsurum á laugardaginn kemur.