D'Angelo Russell, nýliði Los Angeles Lakers var spurður nýverið um þá gagnrýni sem hann er að upplifa á fyrsta ári sínu í NBA deildinni. Ekki stóð á svörunum hjá stráknum:
"Þegar fólk segir eitthvað neikvætt um mig – það þýðir bara að ég þarf að leggja meira á mig. LeBron fær enn gagnrýni. Jesús fær enn gagnrýni."
Þar hafiði það. D'Angelo Russell, LeBron og Jesús. Þeir taka allir gagnrýninni með stóískri ró og vinna í því að lagfæra leikinn.