ÍR-ingar hafa samið á nýjan leik við D´Andre Jordan Williams og mun hann fylla skarðið sem Isaac Miles skildi eftir sig í Hertz Hellinum. D´Andre lék fimm leiki með ÍR í upphafi tímabils og var þá með 9,4 stig, 5,6 fráköst og 7,2 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Williams verður í hópi ÍR í kvöld sem þá tekur á móti Snæfell í Hertz Hellinum kl. 19:15. Eftir leiki gærkvöldsins er ÍR komið í fallsæti með 6 stig en þeirra bíður erfitt verkefni í kvöld gegn Snæfell sem er í 3.-5. sæti deildarinnar með 16 stig.