spot_img
HomeFréttirDagskrá Gatorade búðanna 2022 - Þjálfarar frá sex löndum

Dagskrá Gatorade búðanna 2022 – Þjálfarar frá sex löndum

Gatorade körfuboltabúðir fara fram í Origo höllinni að Hlíðarenda frá mánudegi 6. júní næstkomandi til 9. júní, en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára.

Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum. Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um hvernig hægt er að skrá sig og dagskrá.

Gatorade körfuboltabúðir 2022:

Frá 6. Júní til 9. júní 17.00 – 20:30

11 til 18 ára stelpur og strákar

Verð 12.500 kr.

Skráning hefur verið mjög góð í ár og stefnir í met skráningu í ár. Aðeins eru 30 pláss laus í búðunum í ár, ef þú átt eftir að skrá þig og ætlar að mæta í körfuboltabúðirnar í ár er mikilvægt að skrá sig sem fyrst.

Hérna er hægt að skrá sig

Frekar upplýsingar á T-pósti: [email protected]  

Dagskrá æfingabúðanna 2022

Frá kl: 16.30 – 17.00 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.

17.00 Stöðvaþjálfun: Stöðvaþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í 12 hópa eftir aldri og kyni. Farið er í sex stöðvar á hverjum degi.

Frábæri þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár. Þjálfararnir í ár koma frá sex mismunandi löndum munu þjálfa í búðunum í ár.

1.Styrktarþjálfun: leikmenn fá að leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Dr. Milos Petrovic frá Serbíu sem er með PHd gráðu í styrktarþjálfun íþróttamanna.

2. Video: Á þessari stöð verðu farið í myndbandsgreiningu á körfubolta

Friðrik Þjálfi Stefánsson þjálfara frá Val mun sjá um stöðina. Friðrik er með skemmtilega YouTube síðu með yfir 70.000 fylgjendum sem má sjá hér.

3. Sókn: sendingar, drippl og cut

Á þessari stöð verður æft knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. 

Þjálfari norðurdeildar David Patchell frá Englandi, munu vera þjálfari á stöðinni.

Þjálfara suðurdeildar Halldór Geir Jensson mun þjálfa á stöðinni.

4. Fótavinna, sóknarhreyfingar 1 á 1

Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.

Þjálfari norðurdeildar Pablo Bertone atvinnumaður frá Argentínu mun þjálfa á stöðinni. Einnig mun Sævaldur Bjarnason landsliðsþjálfari U18 ára kvenna þjálfa á stöðinni.

Þjálfari suðurdeildar Ninoslav Vujisic þjálfari frá Makedóníu og  Sigurður Friðrik Gunnarsson þjálfara frá Keflavík munu sjá um stöðina.

5. Varnarleikur

Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik liðs, einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 1 á 1 o.s.frv.

Þjálfara norðurdeildar Ásta Júlía Grímsdóttir landsliðskona frá Val mun þjálfa á stöðinni. Daði Steinn Arnarson þjálfari frá ÍR mun einnig þjálfa á varnarstöðinni.

Þjálfara suðurdeildar Karl Ágúst Hannibalsson, frá Selfossi og þjálfari U14 mun vera þjálfari á stöðinni ásamt Óskar Þorsteinsson þjálfari frá Stjörnunni mun þjálfa á stöðinni.

6. Skotstöð

Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki.

Þjálfari norðurdeildar Chris Caird frá Englandi þjálfari Selfoss mfl.ka. Chris Caird var einn allra besti skotmaður landsins þegar hann spilaði í Dominosdeildinni. Andrea Björt þjálfari frá Fjölni og þjálfari í yngri landsliðum.

Þjálfari suðurdeildar Hassan Haq þjálfari frá Pakistan, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim. Sófus Bender mun einnig þjálfa á stöðinni.

18.30- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.

20.15-Fyrirlestur Stuttur fyrirlestur og æfingunni er síðan slitið í framhaldi af honum. Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.

Yfirþjálfari búðanna: Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi betri þjálfara landsins undanfarna tvo áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val.

Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University og Five Star Basketball Camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.

Fullt var í búðirnar 2021 og má búast við því einnig í ár.

Fréttir
- Auglýsing -