spot_img
HomeFréttirDagskrá Gatorade búðanna 2020

Dagskrá Gatorade búðanna 2020

Gatorade körfuboltabúðir fara fram í Origo höllinni að Hlíðarenda frá mánudegi 15. júní til fimtudags 18. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.
Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færa þjálfara sem munu þjálfa í búðirnar.


Powerade körfuboltabúðir 2020:
Frá 15. Júní til 18. júní 18.30-21.30
12 til 18 ára stelpur og strákar
Verð 9.000 kr
Skráning hefur verið mjög góð í ár og stefniri í met skráningu í ár. Aðeins er nokkur pláss laus í búðunum í ár, og því mikilvægt að skrá sig snemma.


Skráning á netinu
Frekar upplýsingar á T-pósti: [email protected]

Dagskrá æfingabúðanna 2020:


Frá kl: 18.00 – 18.30 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.

18.30 Stöðvarþjálfun: Stöðvarþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í sjö hópa eftir aldri og kyni.
Frábæri þjálfara þjálfa í búðunum í á einsog undanfarin ár

  1. Varnarleikur einstæklinga
    Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 1 á 1 o.s.frv. Sævaldur Bjarnason landsliðs þjálfari U18 ára kvenna mun sjá um stöðina. Daði Steinn Arnarson frá Hamar Hveragerði, mun einning þjálfa á stöðinni.
  2. Varnarleikur
    Á þessari stöð verður farið yfir grundvallaratriði á liðsvarnarleik. Oddur Benediktsson aðstoðaþjálfari U20 karla munu vera þjálfari á stöðinni.
  3. Sóknarleikur:
    Á þessari stöð verðu farið yfir hreyfingar án bolta. Sendingar, Jafnvægi á sóknarvelli, hlaup á körfu (e. cut), hindranir o.fl. David Patchell frá Englandi vera þjálfari á stöðinni. Lidia Villar fyrum landsliðs kona frá Spáni mun þjálfa á stöðinni.
  4. Fótavinna og sóknarhreyfingar
    Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna. Ricardo Dávila þjálfara frá Spáni mun þjálfa á stöðinni, Hákon Hjartarson þjálfari frá Þorlákshöfn og nýráðin þjálfari hjá Fjölni mun einnig verður einnig á stöinni.
  5. Skotstöð
    Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki. Chris Caird Þjálfari frá Englandi og mfl.ka þjálfari Selfoss. Chris Caird var einn allra besti skotmaður landsins þegar hann spilaði í Dominosdeildinni mun vera þjálfari á stöðinni, ásamt Margréti Einarsdóttur, yngriflokka þjálfari frá Fjölni.
  6. Boltatækni:
    Á þessari stöð verður æft knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. Friðrik Þjálfi Stefánsson mun stjórna æfingum á stöðinni.
  7. Fráköst og einn á einn hreyfingar:
    Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum, fráköst, fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna. Helena Sverrisdóttir fyrirliði íslenskalandsliðsins og Íslandsmeistari með Val. Halldór Geir Jensson yngri flokka þjálfari hjá Val mun einnig þjálfa á stöðinni.

20.00- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East og WNBA og síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.

21.20-Fyrirlestur Stuttur fyrirlestur og æfingunni er síðan slitið í framhaldi af honum.

Yfirþjálfari búðanna: Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi bestu þjálfara landsins undanfarinn áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val.
Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu á árunum 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University og Five Star Basketball Camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.

Fréttir
- Auglýsing -