Haukakonan Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir hefur samið við sænska félagið Kvarnby Lions um að leika með því á komandi tímabili.
Dagbjört Gyða, sem er 19 ára gamall framherji, kom við sögu í 16 leikjum með Haukum í Subway deild kvenna á síðasta tímabili.
Kvarnby Lions er staðsett í Gautaborg og leikur í 1. deild í Svíþjóð, næstefstu deild þar í landi.