Davíð Tómas Tómasson dómari mun dæma leik Norrköping og BC Sabah frá Azerbaijan í Svíþjóð í kvöld í FIBA Europe Cup. Liðin tvö leika í G riðil keppninnar, líkt og lið Elvars Márs Friðrikssonar Maroussi frá Grikklandi.
Meðdómarar Davíðs í leiknum eru Ritvars Helmsteins frá Lettlandi og Karol Kowalski frá Finnlandi en eftirlitsmaður er Seppo Viljanen frá Finnlandi.