Stjarnan hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Domino's deild karla, því leikstjórnandinn Daði Lár Jónsson hefur ákveðið að snúa aftur í Garðabæinn eftir að hafa skipti yfir í Keflavík í upphafi ársins.
Í tilkynningu á facebook síðu körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar segir "Leikstjórnandinn knái Daði Lár Jónsson hefur ákveðið að snúa aftur á heimaslóðir og leika með Stjörnunni Garðabæ næsta tímabil í Dominos deildinni. Daði hefur leikið fyrir Stjörnuna upp alla yngri flokka auk þess að leika með yngri landsliðum Íslands en reyndi fyrir sér með liði Keflavíkur seinni hluta síðasta tímabils."