Crystal Smith úr Grindavík vann þriggjastiga keppnina nú fyrir stundu í Stjörnuleikskvöldi kvenna sem er haldið í Toyotahöll Keflvíkinga. Crystal fór í úrslit ásamt Jessica Jenkins, Lele Hardy, Sigrún Ámundadóttir og Britney Jones. Crystal fékk í úrslitum 12 stig á meðan þrjár voru með 10 stig.
Úrslitin:
Crystal Smith Grindavík 12 stig
Britney Jones Fjölnir 10 stig
Jessica Ann Jenkins Keflavík 10 stig
Lele Hardy Njarðvík 10 stig
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir KR 8 stig
Forkeppnin:
Jessica Ann Jenkins Keflavík 15 stig
Crystal Smith Grindavík 12 stig
Lele Hardy Njarðvík 10 stig
Sigrún Sjöfn Ámudnadóttir KR 10 stig
Britney Jones Fjölnir 9 stig
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 8 stig
Björg Guðrún Einarsdóttir KR 7 stig
Petrúnella Skúladóttir Grindavík 7 stig
Pálína Gunnlaugsdóttir Keflavík 6 stig
Kristrún Sigurjónsdóttir Valur 4 stig
Siarre Evans Haukar 3 stig