Íslenska landsliðið er í Berlín í Þýskalandi þar sem það mun æfa næstu daga fyrir síðustu tvo leiki undankeppni EuroBasket 2025. Fyrri leikur liðsins er gegn Ungverjalandi úti á fimmtudag áður en þeir loka undankeppninni með viðureign gegn Tyrklandi heima í Laugardalshöll komandi sunnudag.
13 leikmanna hópur Íslands fyrir lokaleiki undankeppni EuroBasket
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu og ræddi við Craig Pedersen þjálfara Íslands um leikina tvo, möguleika liðsins á að komast á lokamótið sem fram fer í lok ágúst og stemninguna innan hópsins. Craig hefur í tvígang stýrt Íslandi á lokamót, fyrst til Berlínar árið 2015 og svo tveimur árum seinna til Helsinki 2017.