Carlos Mateo framherji Njarðvíkinga hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en staðfest er að hann er með slitna hásin. Carlos hefur verið Njarðvíkingum öflugur í vetur og skilað 15 stigum og tekið um 5 fráköst á leik. Ekki er vitað á þessari stundu hvort Njarðvíkingar kom til með að fá annan leikmann í stað Carlos.