Heimsfrægi þjálfarinn Coleman Ayers kemur til Íslands um páskana. Hann er 24 ára, hefur þjálfað leikmenn af öllum stigum (meðal annars NBA leikmenn) og haldið körfubolta kampa í 15+ löndum. Vörumerkið hans “By Any Means Basketball” er gríðarlega vinsælt, hefur 350þús áskrifendur á Youtube (45+ milljón áhorf) og 100þús fylgjendur á Instagram.
Í apríl ferðast hann um Evrópu heldur t.d. kampa á Spáni, Ítalíu, Englandi, Noregi, Svíþjóð og Íslandi.
Hann mun halda körfuboltanámskeið í páskafríinu dagana 5-7. apríl (miðvikudag-föstudag), í glænýju íþróttahúsi ÍR í Skógarseli.
Æfingatímarnir verða eftirfarandi:
11-14 ára (6.-9. flokkur) 10:00-12:00
15+ ára (10. fl og eldri) 13:00-15:00
Leikmenn á öllum stigum (minnibolti uppí meistaraflokk, áhugamenn eða Klambratúns spilarar) velkomnir. Unnið verður að miklu leyti í hópum svo allir fá samkeppni við hæfi.
Hver æfing er 2 klst en salurinn er laus fyrir/eftir svo að áhugasamir leikmenn eru hvattir til að mæta fyrr (~30 mín) og hanga lengur (~30 mín) til að skjóta, eða spjalla við þjálfarana og fá einstaklings-miðaða hjálp með sinn leik.
Innifalið í skráningunni er einnig aðgangur að einu (að eigin vali) af fjórum online prógrömmum hans:
“Ultimate Athleticism Program” — “Small Guard Essentials” — “Lockdown Defender Program” — “Ultimate Ball-Handling Program”
Verð: 14.900kr
Ekki hika við að hafa samband á [email protected] ef einhverjar spurningar vakna.