Gamla stórveldið ef svo má kalla gerðu sér lítið fyrir og slógu út Brooklyn Nets í oddaleik í Brooklyn í gærkvöldi með 99:93 sigri. Bulls neyddust til að spila leikinn án Kirc Heinrich sem var meiddur en fyrir voru það Derrick Rose og Luol Deng sem voru enn í meiðslum. En það borgaði sig svo sannarlega að vera með Joachim Noah í sínu liði í gærkvöldi. Kappinn skilaði flottri tvennu, 14 fráköst og 24 stig. Bulls áttu einnig 19:6 áhlaup rétt fyrir hálfleik sem byggði grunninn að þessum sigri þeirra. Chicago sem er með nokkuð laskað lið eiga fyrir sér gríðarlegt verkefni í næstu umferð, en þá halda þeir suður á ströndina í Miami.