9 leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Hart var barist á fremstu víglínum austurdeildar því Orlando Magic tók á móti efsta liðinu, Chicago Bulls, á meðan Miami Heat og Boston Celtics tókust á í Suður-Flórída.
Það virðist fátt geta stöðvað Chicago Bulls þessa dagana. Liðið vann sinn sjöunda leik í röð í nótt, og þar með sinn sextugasta á tímabilinu, gegn Dwight Howard-lausum Orlando Magic. Derrick Rose fór á kostum enn eina ferðina og sallaði niður 39 stigum fyrir Bulls en Ryan Anderson fór fyrir heimamönnum í Magic með 28 stig, lokatölur 102-99 fyrir Bulls. Það var öllu meira óspennandi leikur sem fór fram syðra í Flórída þar sem heimamenn í Miami Heat tóku Boston Celtics í kennslustund. Miami komst þar með upp fyrir Boston í annað sæti austurdeildar. LeBron James skoraði 27 stig fyrir heimamenn í Heat en Paul Pierce var stigahæstur grænna með 24 stig, lokastaðan 100-77, Heat í vil.
Önnur úrslit að neðan.
Detroit Pistons-Charlotte Bobcats (112-101)
New Jersey Nets-Toronto Raptors (92-99)
New Orleans Hornets-Memphis Grizzlies (89-111)
New York Knicks-Indiana Pacers (110-109)
Phoenix Suns (90-115)
Sacramento Kings-Golden State Warriors (104-103)
Oklahoma City Thunder-Los Angeles Lakers (120-106)