spot_img
HomeFréttirBúið að velja A-landslið kvenna

Búið að velja A-landslið kvenna

Búið er að velja 12 manna landsliðshóp kvenna sem mun keppa í Evrópukeppni smáþjóða í sumar í Austurríki. 16 manna æfingahópur æfði um helgina í Grindavík og nú hafa Ívar Ásgrímsson og Margrét Sturlaugsdóttir þjálfarar valið endanlegan hóp. Frá þessu er greint í tilkynningu frá KKÍ.
 
 
 
Framundan eru æfingaleikir við Danmörk hér heima, 9. júlí á Ásvöllum og þann 10. júlí í Stykkishólmi en Evrópukeppnin hefst síðan 14. júlí.
 
Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: (félagslið og fjöldi landsleikja, leikstaða og hæð fyrir aftan)
 
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík · 23 · Framherji 178 cm
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar · 7 · Bakvörður 174 cm
Helena Sverrisdóttir · DVTK Miskolc · 45 · Bakvörður 184 cm
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell · 3 · Framherji 184 cm
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell · 73 · Bakvörður 170 cm
Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur · 28 · Framherji 176 cm
Margrét Rósa Hálfdanardóttir · Haukar · Nýliði · Bakvörður 177 cm
María Ben Erlingsdóttir · Grindavík · 37 · Miðherji 184 cm
Marín Laufey Davíðsdóttir · Hamar · Nýliði · Miðherji 180 cm
Pálína Gunnlaugsdóttir · Grindavík · 22 · Bakvörður 167 cm
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Valur · 17 · Miðherji 186 cm
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · KR · 24 · Framherji 178 cm
 
 
Guðbjörg Sverrisdóttir, Val, er 13. leikmaður liðsins og mun hún æfa með liðinu og koma inn í liðið forfallist einnver leikmaður.
 
Mynd/ Margrét Rósa Hálfdanardóttir er annar tveggja nýliða í landsliðshópnum. Á myndinni er Sigrún Sjöfn Ámundadóttir til varnar en hún og Margrét Rósa munu snúa saman bökum með landsliðinu í sumar.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -